Á tímum góðærisins þótti manni ekkert athugavert við það að vera með fullt af stöðvum í sjónvarpinu, vera bara með alla pakkana og sjá allar stöðvarnar. Ég sem krakki ólst upp við að á heimilinu var gervihnattadiskur mikill og stór eða rúmlega 2 metrar í þvermál, festur við gamlan ljósastaur sem grafinn var niður í lóðina hjá okkur. Þess vegna náði ég öllum helstu sjónvarpsstöðvum evrópu og var farinn að skilja hrafl í þýsku áður en ég varð 12 ára. Til að byrja með höfðu foreldrar mínir áskriftarkort sem var í rauninni ekki áskrift því einusinni í mánuði fengum við nýtt kort sent heim sem var svokallað „sjóræningjakort” og var eflaust mun ódýrara en að kaupa áskrift hjá Sky eða sambærilegu fyrirtæki. Á þessum tíma var Stöð 2 nýlega komin í útsendingu í Grímsey og þótti manni reyndar svolítið leiðinlegt að missa af dagskrárliðum eins og Afa á Stöð 2 og þ.h. þáttum sem margir aðrir höfðu aðgang að. Reyndar endaði með því að pabbi samdi við manninn í næsta húsi um að fá að tengja kapal á milli húsa svo við gætum horft á Stöð 2.
Eftir að hafa verið með gervihnattadisk í dálítinn tíma og staðið í eilífu stappi með sjóræningjakort þá var ákveðið að hætta að kaupa áskriftina og láta duga að hafa þær stöðvar sem voru ókeypis. Það var gott og blessað, af nógu var að taka og einhverntíman taldi ég 170 sjónvarpsstöðvar opnar á sama tíma okkur að kostnaðarlausu.
Svo kom að því að við fluttum frá Grímsey til Akureyrar og hættum fljótlega eftir það að vera með gervihnattadisk enda ekkert smekklegt við það að hafa disk utan á húsinu hjá sér sem var 2metrar í þvermál, grár og ljótur. Í dag þegar allar sjónvarpsútsendingar eru mögulegar á stafrænu formi þá er ekki eins mikilvægt að hafa svona stóran disk. Samkvæmt því sem ég best veit dugar 90cm diskur alveg í dag til að ná merki frá gervitungli.
Samkvæmt heimasíðu Eico (17.02.10) er hægt að fá stafrænan mótakara og 85cm disk ásamt nema á 39.900.- kr sem er einungis brot af því sem það kostaði fyrir fimmtán árum. Ekki er nein áskrift innifalin í því en hinsvegar er fjöldi rása sem fylgir frítt með.
Eftir að hafa skoðað síðuna hjá Eico svolítið fór ég að reikna, ef ég kaupi disk, mótakara og nema á tæp 40þúsund og hætti með Skjáinn, er ég að græða?
Setjum dæmið upp: Að kaupa „Allt“ pakkann hjá Skjánum kostar 5.200.- kr á mánuði eða 62.400.- kr á ári.
Svo vil ég kannski áskrift að Stöð2 og skrái mig í Stöð 2 Vild í leiðinni. Þá fæ ég allan pakkann hjá þeim, sportstöðvar og plússtöðvar á 14.004.- kr sem gera 168.048.- kr á ári.
Svo vil ég líka Skjá Einn en það eru 2.200.- kr á mánuði eða 26.400.- kr á ári.
| dags. 13.02.10 |
Skjárinn* |
Stöð 2* |
Skjár Einn |
Samtals |
| Mánaðargjald |
5.200.- kr. |
14.004.- kr. |
2.200.- kr. |
21.404.- kr |
| Árgjald |
62.400.- kr. |
168.048.- kr. |
26.400.- kr. |
256.848.- kr. |
Samtals gerir þetta 256.848.-kr á ári sem mér finnst vera óþægilega mikið og ekki er nefskattur Rúv inni í þessu!
Ef ég kaupi diskinn hjá Eico á 39.900.- kr þá má deila því á 12 mánuði sem gera 3.325.- kr og allar stöðvarnar sem Skjárinn býður uppá fylgja með ókeypis, allt árið um kring og jafnvel fleiri stöðvar en þær sem Skjárinn býður uppá.
Ef svo færi að ég myndi frekar vilja fá mér Sky pakka og disk þá er dæmið aðeins dýrara til að byrja með en þó myndi það borga sig til lengri tíma litið. Eico býður til sölu á síðunni sinni SKY+HD Thomson móttakara með 85 cm diski og tvöföldum nema á 139.900.- kr og þess má geta að móttakarinn er með 160 gb innbyggðum hörðum diski til þess að taka upp. Með þessum pakka er ekki áskrift að Sky innifalin en þó er fjöldinn allur af frírásum, og gott ef ekki allar þær rásir sem Skjárinn býður uppá. Áskrift að Sky kostar frá 15 pundum og alveg uppí 45 pund á mánuði. Eico aðstoðar mann við að fá samning við Sky og ef ég gef mér að gengið sveiflist svolítið er ekkert ólíklegt að grunnáskrift að Sky kosti 39.000.- kr á ári. Hinsvegar getur maður valið allar þær áskriftarleiðir sem eru í boði hjá Sky svo þessi 39 þúsund eru ekki alveg heilög tala og er alveg hægt að fá alla áskriftarleiðirnar á 540 pund á ári (tæp 110þúsund).
Svona lítur þá dæmið út ef ég ætla mér að kaupa Sky pakka og reikna með því að borga hann upp á einu ári:
Diskur, nemi, mótakari 139.900.- kr + áskrift í eitt ár 39.900.- kr eða 179.800.- kr sem gera 14.983.- kr á mánuði fyrsta árið og svo 3.325.- kr á mánuði eftir það. Þess ber þó að geta að uppsetning disksins er ekki inni í þessu verði og ekki heldur festing fyrir hann.
Svona lítur svo dæmið út ef ég ætla að kaupa Sky pakka og reikna með því að borga hann upp á þremur árum:
Diskur, nemi, mótakari 139.900.- kr + áskrift í þrjú ár 119.700.- kr sem gera 259.600.- kr eða 7.212.- kr á mánuði.
Það er kannski best að taka það fram að með því að vera ekki með gervihnattadisk þá sér maður ekki alla Íslensku sjónvarpsþættina sem þær bjóða uppá en hinsvegar get ég alveg lifað án þeirra.
Þeir sem hafa skoðun á þessu og vilja velta vöngum yfir þessu hvet ég til að skilja eftir athugasemdir. En hinsvegar virðast möguleikarnir í þessum málum vera nærri því óendanlegir og þó maður hafi allar áskriftarleiðir Sky allt árið um kring nær það samt sem áður ekki að toppa verðin hjá Íslensku áskriftarsjónvarpi!